Ungu hjarta er allt einlægt gaman.

Um spamadur.is

Á Tarot síðunni getur þú skrifað spurningu og fengið stuttan spádóm. Neðan við spádóminn birtist tengill til að bókamerkja þann spádóm, ef þú vilt geyma hann.

Hið sama má gera Talnaspeki, og þannig má geyma allt sem þú skoðar.

Skráðir notendur geta vistað spár sínar og ritað athugasemdir við þær. Síðar gæti spáin ræst eða þú séð hana í nýju ljósi, og er það aukin ánægja við spádómana

Einnig má vista niðurstöður úr Talnaspeki. Þannig má geyma tölur fyrir alla fjölskyldu sína, eða vini, í „Mín síða“ og bera saman tölurnar eftir talnakerfum. Við notum þrenn talnakerfi: Pýþagóras, Kaldea og Íslenskt. Þetta Íslenska er byggt á Kaldea kerfinu en raðar íslenskum bókstöfum niður eftir hljóm þeirra.

Þá getur innskráður notandi valið sín uppáhalds spil fyrir Tarot spárnar. Þau spil eru þá ætíð valin fyrir hann ef hann er innskráður.

Guðjón Elías sá um alla forritun og túlkun vefsins. Hann hefur spáð í Tarot og bolla frá því hann var unglingur og hefur ýmsa aðra reynslu úr andlega geiranum. Hægt er að panta tíma hjá honum í síma 898-1298.

-